Ađalvalmynd

NM í Bergen

Bergen here I come!

14. ágúst 2008 klukkan 22:17
Þá er þetta að bresta á...er búin að pakka þessu litla sem ég þarf að hafa með og er á leiðinni í rúmið. Fer út á flugvöll snemma í fyrramálið svo það er eins gott að sofa eitthvað því þó að ég sé bara að fara til Bergen þá er þetta ekkert smá ferðalag! Keflavík - Köben - Bergen og mun þetta í heildina taka tæpan hálfan sólarhring. Ég botna ekkert í því af hverju FRÍ splæsti ekki einkaþotu á liðið:S:P

Ég keppti áðan. Sleggjan lufsaðist yfir 48 í síðasta kasti sem reddaði kastseríunni algjörlega. Var auðvitað að spara mig fyrir sunnudaginn:P:P neeee segi svona (en það verður sko tekið almennilega á því þá og ekkert helvítis væl!!)

Vildi bara aðeins  láta heyra í mér áður en ég fer út svo þessir báðir sem skoða þessa síðu fari ekki að hafa áhyggjur.

Góða nótt og góða helgi alle sammen!

kv. Sandra

Bloggleti

07. ágúst 2008 klukkan 11:40
Hrikalega hefur maður verið latur við þetta:/ Mér finnst reyndar bara ekkert merkilegt hafa gerst sem gaman væri að blogga um. Verslunarmannahelgin búin, hún var ágæt. Er búin að heyra um allt sem gerðist í Eyjum og skemmti fólk sér almennt vel þar. Það er því hér með ákveðið að ég er að fara þangað á næsta ári! Enda held ég að ég komist ekki upp með neitt annað þar sem ég var hundskömmuð fyrir að koma ekki með í þetta skipti.

Ég er búin að keppa smá núna í síðustu viku og gekk það bara ágætlega. Á fimmtudaginn vaknaði ég með klemmda taug í öxlinni sem var alveg massa óþægilegt en hrúgaði hitakremi á hana og keppti í Kópavoginum. Var ekki að búast við miklu en kastaði þó 49,34m sem er nú ekki svo slæmt. Daginn eftir var hendin 10 sinnum verri svo ég var farin að halda að eitthvað alvarlegra væri að en klemmd taug. Keppti samt í Hafnarfirðinum í búrinu hans Begga (sem er gert fyrir örvhenta) og lá við að rétthentu keppendurnir þrumuðu sleggjunni út á götu sem er ekki sniðugt. Kastaði ekkert svo langt þann daginn eða 47,80m. Hendin er eins og ný núna og ég að fara að keppa í kvöld á heimavelli!!:D Það verður gaman;)

Það styttist og styttist í NM...bara VÓ!! Sjitt! Bara 8 dagar þangað við förum út!! Úffamig:S Þar er markmiðið að kasta yfir langþráða 50 metra línuna og það skal takast! Ég er bara ekki alveg í fíling til að keppa og keppa og keppa þangað til ég næ því. Langar að drífa þetta af svo uppbyggingartímabilið geti hafist á réttum tíma þetta árið.

Ég ætla að gera eitthvað geðveikt skemmtilegt um helgina með vel völdu fólki:D og ég hlakka til!!

Það er svo stutt í að ég eigi afmæli!! Það er samt glatað að eiga afmæli á mánudegi:( og ég þarf að vinna um kvöldið....pff!
Mig dreymdi í nótt að ég væri úti í London að keppa með ÍR og átti að fara í boðhlaup (200 m sprett:S:S) Er þetta merki um það að maður sé að fara á Ólympiuleikana í London 2012 eða hvað?! Þegar ég vaknaði langaði mig allavega sjúklega mikið til London, versla, fara í leikhús, skoða allt sem hægt er að skoða:D

kv.Sandra

Hvar ertu sól?

31. júlí 2008 klukkan 12:41
Af hverju er ekki svona steikjandi hiti í dag eins og í gær??!!! Mig langar það svo miiiikiiiiððð.

Eftir að ég bloggaði á þriðjudaginn gerðist alveg hellingur og því ákvað ég að tími væri kominn á nýja færslu:) Ég og Börkur skelltum okkur á hádegisæfingu í góða veðrinu á kastvellinum. Æfingin var alveg hræðileg en æfing engu að síður. Ég bara get ekki kastað daginn eftir lyftingar!! Eftir æfingu fór ég í sund með Guðmundu sem ég hitti síðast einhverntíman í maí. Gellan er bara orðin brúnni en ég eftir 5 vikna dvöl í Frakklandi og er það í fyrsta skipti í lífinu sem það gerist. Eftir að hafa tanað í sundi brunaði ég á Selfoss til að hitta Lilju. Við fórum í smá ævintýraleiðangur ásamt Rakel og Gunnhildi sem eru að vinna með henni. Keyrðum að Seljalandsfossi, fórum á bak við hann, skoðuðum Gljúfrabúann og óðum inn að honum með tilheyrandi píkuskrækjum. Sjitt hvað vatnið var kalt!! Síðan príluðum við upp í Paradísarhelli þar sem æstur fýlsungi hrækti á okkur hægri vinstri. Ég var svo mikið viss um að ég ætti aldrei eftir að þora að klifra niður og var farin að sjá fyrir mér þyrlur og björgunarsveitarmenn. Ég er greinilega meiri ofurhugi en ég hef haldið fram að þessu því ég var eins og hin mesta klifurmús þarna í klettunum. Hörkuskemmtilegt kvöld alveg sem endaði auðvitað heima hjá Lilju á Laugarvatni þar sem við LOKSINS náðum að halda okkur vakandi í gegnum Night at the Roxbury. Í gær vöknuðum við svo í þessum steikjandi hita og var því ekki annað í stöðunni en að skella sér út í sólbað. Fórum að vaða í Laugarvatni, lágum á bryggjunni í fótabaði og borðuðum ís og köku úti í garði.
Arnór bauð mér síðan á ströndina svo ég og Mía mús drifum okkur í bæinn og á ströndina. Reyndar langaði músina ekki með svo henni var skutlað heim. Það var alveg fullt fullt fullt af fólki á ströndinni og svaka stemning:)

Í gærkvöldi var síðan komið að því að fagna brottflutningi kellingarinnar í því neðra. Við familían fórum á Ruby Thuesday og fengum okkur feeeiiita rifjasteik sem var auðvitað betri en allt! Eftir að mamma hafði gert símaat í Arnóri fengum við okkur McFlurry þar sem pabbi sýndi snilli sína í bílalúgunni.

Góður dagur í alla staði:)

Í dag fékk ég mér eitt stykki vinnu og er síðan að fara að keppa í kvöld.

Ha det bra!

- ESS PÍ

Bara kominn ţriđjudagur...??

29. júlí 2008 klukkan 10:25
MÍ um helgina, það fór nú ekki alveg eins og ég hefði viljað og var stundum of mikið svekkelsi til að mín litla brothætta sál gæti þolað það. Ég sem sagt náði ekki yfir 50m í sleggju, tapaði 3. sætinu í kúlu á næstlengsta kasti og svo þurfum við held ég ekkert að ræða kringluna.

Ég skil ekki alveg hvað var að mér í sleggjunni. Það var eins og líkaminn vildi bara ekki í gang. Hausinn var í lagi og ég var svo viss um að ég færi yfir 50 að ég var liggur við ekkert svekkt yfir fyrstu 2 köstunum sem voru bara 45,??. Það fór nú samt aðeins að fjúka í mig þegar köstin lengdust ekki nóg og í síðasta kasti ætlaði ég sko að negla á það ennnnn 49,43m var lokaniðurstaða. Alla og Kristbjörg létu sér ekki nægja að fara bara yfir 50 heldur skelltu þær sér yfir 51 líka!! Þvílíkt flott hjá þeim. Ég er nú samt ekki komin í neina keppnispásu því það er mót á fimmtudag og föstudag og síðan í næstu viku líka. NM er síðan 16.-17. ágúst og ætla ég að vera í suddalegu kastformi þá:D

Í gær gerðist sá einstaklega skemmtilegi atburður að Arnór eignaðist bíl (sem hefur hlotið nafnið Allison - og er svaka gella:D) og fór því gærkvöldið í að rúnta á kagganum. Við rúntuðum í Laugardalinn þar sem fram fór leikur Þróttar og Bbliks. Þess má geta að þetta var fyrsti fótboltaleikurinn á ævinni sem ég horfi á!! Og djöfull var þetta leiðinlegt! Það gerðist bara ekki neitt í þessum leik þessar mínútur sem ég var þar. Ég var þó líklega aðeins of fljót á mér þegar ég sagði að EKKERT hefði gerst því þegar ég sá fréttirnar í gær var talið að einn blikinn hefði kjálkabrotnað í leiknum....(mér finnst fótbolti SAMT leiðinlegur).

Síðan er stóra spurningin hvað maður á að gera um helgina. Það eru bókstaflega ALLIR að fara til Eyja, meira að segja mamma er að fara! Mig langar en það er ekki alveg inni í dæminu þar sem maður verður kannski að eiga einhverja peninga til að demba sér út í svona vitleysu. Það er margt annað skemmtilegt í boði svo manni ætti ekki að leiðast. Pabbi verður að spila á Siglufirði og væri nú alltaf gaman að fara þangað. Svo er auðvitað Ein með öllu á Akureyri og ball í Skagafirði...nóg að gera! Ég þarf samt líklegast að æfa eitthvað svo sleggjan verður  með í aftursætinu:)

kv. Sandra

Bara heima ađ tjilla...

24. júlí 2008 klukkan 14:09

Það er auðvitað alltaf gott að koma heim þó það sé skítakuldi hérna. Það var gott að hitta múttu og pabba, var með pípandi munnræpu alla leiðina heim frá flugvellinum enda 2 mánuðir síðan ég sá þau síðast og margt að tala um. Við töluðum svo mikið að við vorum ekki alveg farin að sofa á réttum tíma. Þurfti samt furðulítið að sofa þessa nótt og vaknaði hin hressasta rúmlega 9 eftir 5 tíma svefn. Fékk þetta svo allt í hausinn í gær og var frekar mikið þreytt. Við pabbi skutluðum Erlend út á flugvöll þar sem hann var að fara norður á Akureyri og þaðan á Sauðárkrók til Önnu. Dagurinn fór síðan í það að taka upp úr töskum og dusta rykið af herberginu mínu. Fór á æfingu þar sem ég hitti peeps and homies sem er auðvitað alltaf gaman. Fór ásamt Helgu Björt í heimsókn til Herdísar og þaðan heim til Arnórs sem ég var ekki búin að hitta síðan 7. júlí!!

Næst á dagskrá er meistaramótið um helgina en búast má við suddalegri sleggjukastkeppni í kvennaflokki þar sem við erum allar við 50 metrana.

-Sandra    49,97m
-Alla          49,85m
-Kristbjörg 49,82m

Já, svona lítur þetta út...og eru þetta allt nýjar tölur.

Ég er hins vegar að fara í verslunarferð með múttu þar sem við eigum ekkert að borða nema hrísgrjón og guð hjálpi mér ef ég þarf að lifa á hörðum uncle bens hrísgrjónum næstu daga!!

kv. Sandra

p.s. Hilla! Þú ert ekki að standa þig! youknowwhatimsaying....

Bless Noregur...hallo Island!

22. júlí 2008 klukkan 13:09
Tetta verdur sidasta bloggid i Noregi...tetta er svo SKRITID! 2 manudir eru bunir ad lida allt of hratt. Mig bara langar liggur vid ekki ad fara heim og er tad kannski mest ut af tvi ad tad a ad koma gedsjukt vedur herna næstu 2 vikurnar. Audvitad turfti tessi hitabylgja ad byrja i dag svo eg er ekki satt...hinsvegar er tvotturinn sattur uti a snuru tar sem hann tornar a turbohrada.

I gær var engin venjuleg æfing. Fekk sma fri fra sleggjunni og profadi svoldid sem Arild er buinn ad bida spenntur med ad lata mig profa. Eg er ad tala um lodakast! Ok, trukkalegt eg veit en tad var rosa gaman. Eg kastadi lengst 15,28 med 9 kg lodi. Svoldill munur a tessum klump og sleggjunni...sleggjan virdist bara vera litil og lett a midad vid tetta.
Eftir æfingu var sidan svona kvedjukaffi fyrir mig tar sem vid hittumst flest sem eg hef verid ad umgangast herna uti. Tad var rosa gaman og bara nanast eins og eg ætti afmæli hohoho. Bordadi yfir mig af jardarberjum og is og svo fekk eg lika pakka! liggaliggalai! Svoldid tungur pakki....lika svoldid kringlottur med longum vir og handfangi....ja! Tau gafu mer sleggju:D Nu er eg ordin alvoru med mina eigin sleggju:D:D Eg turfti nu lika ad gefa teim eitthvad svo eg teiknadi tessa lika finu blyantsteikningu af sleggjukastara til ad sina hæfileika mina a listasvidinu:P

I dag er eg buin ad fara a æfingu og reyna ad pakka en tar sem mer finnst tad svo oskaplega leidinlegt ta er eg rett svo halfnud...Eg og Arild forum i bladavidtal eftir æfinguna hja einhverju bladi herna. Svo var tekin mynd af okkur sveittum i æfingafotunum svo tetta getur ekki klikkad.
Vid Erlend leggjum af stad med lest kl. 19.08 til Gardemoen og sidan fer flugid 21.55, sem tydir ad eg ætti ad vera komin heim kl. 22.35 a islenskum tima. Ætla ad reyna ad fara med sleggjuna i handfarangri tvi eg held ad tad se einfaldlega ekki plass fyrir hana i toskunni minni...spennandi ad sja hvernig tad fer. Vona bara ad eg verdi ekki tekin i eitthvad hrydjuverkatekk:S

Se ykkur bradum!!

kv. Sandra

Seint ad kvoldi 20. juli...

20. júlí 2008 klukkan 22:10
Jæja jæja....ta er bara komid ad næstsidustu nottinni herna i Norge. Vid komum heim fra hyttanum i dag. Vid fengum bædi gott vedur og vont vedur...i goda vedrinu breyttist eg i tomat en i vondavedrinu breyttist eg i blautan tomat. Eg allavega nadi ad nyta sidustu solardagana herna adur en eg fer heim.
En tad sem eg hef annars verid ad bralla sidustu daga:  Vid forum a Munch safnid i Oslo. Fyrir ta sem ekki vita ta er hann mjog frægur malari og hefur medal annars malad tessar myndir:

Opid

og uppahaldid mitt Madonna


Rosaflott ad sja tetta to mer finnist stillinn hans frekar spes. Vid eyddum sidan nanast ollum laugardeginum i heimsokn hja Einari og konunni hans. Einar var tjalfarinn hans Arild a sinum tima og tjalfar nuna tau bestu i Noregi s.s. Monu Holm og Trude Raad (sem eg er ad fara ad keppa vid a NM). Hann tjalfar lika stelpu sem eg er buin ad keppa svolitid vid herna. Hun heitir Maria og er einu ari yngri en eg. Eg er mjog stolt af tvi ad nuna hef eg kastad 1 cm lengra en hun (hun sko RUSSTADI mer alltaf a motum - not anymore!).

EG HLAKKA TIL AD KOMA HEIM!!! Veit eiginlega ekki hvad eg a ad gera af mer tessa 2 daga sem eru eftir en tad verdur ad vera skemmtilegt:D Kannski er bara malid ad hafa trampolinmarathon!

Æfingarnar hafa alltaf gengid betur og betur, i rauninni atti eg bestu æfingu sumarsins i gær. Hun var rosaleg!! Arild var sko anægdur med mig og eg lika:)

Allavega...goda nott og hlakka til ad sja ykkur eftir bara 2 daga!

kv. Sandra

Farin aftur

16. júlí 2008 klukkan 22:02
Stutt tilkynning:

Eg verd i Åsgårdstrand fram a sunnudag...mun ekkert skrifa tangad til.

Aaaahhhh! svo mikid sem tarf ad gera adur en eg kem heim!!!

kv. Sandra

Himininn lekur

15. júlí 2008 klukkan 13:58

Pælid i tvi ad tad er bara vika i ad eg komi alveg heim! Tetta er buid ad vera svo fljott ad lida. Eg hlakka rosalega mikid til ad koma heim en samt a eg eftir ad sakna Noregs. Tad er buid ad vera alveg ædislegt ad bua herna i tessa 2 manudi og eg otrulega anægd ad hafa drifid mig hingad.
Mer lidur svo mikid eins og eg eigi ekki eftir ad keppa neitt meira...hausinn er alveg farinn i klessu! Finnst bara eins og eg se ad fara heim og byrja a uppbyggingartimabilinu:S Tad er ekki alveg nogu snidugt tvi tad eru 2 stor mot eftir, MI og NM.
Æfingarnar hafa gengid alveg hrædilega illa sidan eg kom aftur ut. Get ekki neitt, kann ekki neitt og skil ekki neitt! Vid erum buin ad æfa i Tønsberg sidustu vikuna tvi vid forum eins og eg sagdi fra i sidasta bloggi i hyttann i Åsgårdstrand. Vedrid var rosalega gott mestallan timann og eg var ad fyla mig nokkud friska to eg hafi verid ad deyja ur treytu fyrstu dagana eftir komuna hingad. Er buin ad kasta 3 kg sleggjunni allan timan og OMG! Ef einhver hefdi sed tessi kost hefdi hann aldrei truad tvi ad eg se sleggjukastari! Eg helt nu fyrst ad tetta væri bara treyta og ad allt myndi smella eftir fystu 1-2 æfingarnar. Tad gerdist to ekki og tegar tetta helt svona afram fram ad helgi ta var min sko buin ad fa nog! Gafsts upp a laugardaginn eftir 3 kost og for i kringlu. Var mun betri a tvi svidi;) Hvildi a sunnudaginn to eg hafi ekki ætlad ad gera tad. Æfingin i gær var sidan muuuun betri. Kastadi 3ja og 4ra kg sleggjunum og to tetta hafi ekki verid nein superæfing ta var eg ad standa mig furduvel med 4 kiloin:D Er tvi bara nokkud satt med lifid og tilveruna nuna:)

En yfir i eitthvad annad en æfingar...sidustu dagar eru natturulega bunir ad vera slooookun. Vid forum i bio a sunnudaginn i Tønsberg og saum Mamma Mia! sem er ad minu mati mjog god. Eg vard eitthvad svo glod i hjartanu tegar eg horfdi a hana:P Væri alveg til i ad fara i fri a tessa eyju tar sem myndin var tekin upp. I gær foru eg og Bjørg i gelluferd i mallid. Eg hef ekki keypt mer eina einustu flik sidan eg kom hingad en tad breyttist sko heldur betur i gær (erum samt ekkert ad tala um einhverja endurnyjun i fataskapnum...). Eg keypti mer nyja sko og pils svo eitthvad se nefnt. Svo gaman ad kaupa foooot:D:D

Annad merkilegt sem gerdist i Åsgårdstrand:

- eg sa einn frægasta bankaræningja Noregs (sem atti metid i bankaranum tangad til fyrir stuttu). Hann er nu hættur sem bankaræningi og rekur bakari;)
- eg var stungin af byflugu i ILINA!! Mjog otægilegur stadur:/

kv. Sandra

Eg elska sukkuladi!

09. júlí 2008 klukkan 14:54

Sol, sol, sol!! Er buin ad vera uti i allan dag med tanoliuna - hun er besti vinur minn herna uti:) Eg er buin ad vera dugleg ad mala og loksins farin ad sja fyrir endann a tessu, turfti ad hætta vegna tess ad tad kom arans rigning og eg rett nadi ad bjarga tvottinum inn. Eg for lika a tryllitækid og slo gardinn. Ekki nog med tetta heldur var dugnadurinn i hamarki i dag og eg tyndi fulla skal af jardarberjum!! Nokkur teirra hoppudu alveg sjalfviljug upp i mig og ummmmm! Tau voru svo god!!!

Helstu frettirnar eru sidan tær ad vid erum ad fara til Åsgårdstrand i kvold eftir æfingu. Tau voru svo elskuleg ad lata mig vita af tessu plani vid kvoldmatarbordid i gær. Vid komum ekki aftur fyrr en eftir helgi svo tetta er sidasta bloggid i bili. Planid næstu daga er ad liggja eins og klessa i solbadi, borda og æfa. Lifid er svo ljuft:D

I gær for eg a sma runt med Onnu og Erlend. Anna hringdi i mig og spurdi hvort eg hafi farid i Løten lys sem er bud sem selur kerti. Eg var nu ekki alveg ad skilja hvad var svona merkilegt vid kertabud en akvad to ad skella mer med. Se sko ekki eftir tvi tar sem tessi bud var geggjud! Blomaval er algjort prump a midad vid tetta. Vorum tarna inni i um klukkutima tvi budin var alveg endalaust stor.
Um kvoldid skrapp eg sidan a runtinn med Bjørg og Arild. Tau syndu mer skydasvædid i Budor tar sem Arild vinnur a veturna. Tetta er vist adalpleisid tegar snjoar og Nordmenn verda alveg spinnegal og skida allan daginn (sjitt hvad tad datt mikill einkahumor nidur i hausinn a mer nuna....Sigurjon fattar).

Eg er annars farin ad hlakka svo mikid til ad koma heim. Nykomin ut en get varla bedid eftir ad fara heim aftur. Tad eru lika miklar likur a tvi ad Erlend verdi i sama flugi og eg - kemst ad tvi a eftir. Vuhu! Ta tarf eg ekki ad ferdast ein:D

En eg vona ad ykkur gangi vel med tad sem tid erud ad gera og hafid tad gott næstu daga. Læt heyra i mer tegar eg kem heim ur hyttanum (vonandi brun eins og kukur).

kv. Sandra

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...